Matarstell með Fígúrum úr ævintýraheiminum Tulipop. Gert úr umhverfisvænum bambus trefjum.
Settið inniheldur disk, skál og glas. Borðbúnaðurinn er myndskreyttur með myndum af fígúru og hennar umhverfi. Hægt er að velja um Bubble, Miss Maddy, Fred og Gloomy.
Kemur í endurvinnanlegum umbúðum.
Stærð
Stærð kassa: Breidd 22,5 cm, hæð 22,5 cm, dýpt 10,7 cm.
Efni
Þetta sett er gert úr endurvinnanlegum bambus trefjum. Bambus trefjar eru umhverfisvænt efni, því bambus er fjölær jurt og efnið er auðvelt að endurvinna. Má þvo í uppþvottavél en mælt er með að stilla ekki á hærri hita en 60°, til að koma í veg fyrir að litirnir fölni. Má ekki setja í örbylgjuofn.